NÁTTÚRA - NÆRING - NÆRVERA
Við erum grænfánaleikskóli.
Höfum fengið fánann 4 sinnum
Við:
Moltum – Flokkum – Gróðursetjum – endurvinnum – Endurnýtum – spörum rafmagnið – hugum að matarsóun – förum varlega með vatn, sápu og bréf – skiptifatakörfur – spörum pappír –týnum rusl
Seigla og nenna einkenna starfsmenn og starf Akrasels
Að bera virðingu fyrir náttúrunni og njóta hennar saman er stór þáttur í starfinu okkar.
Við leggjum mikið uppúr hollum og góðum mat.
Borðum hann bæði úti og inni, heima og að heiman.
Hugmyndir eru framkvæmdar, fá að þróast og hafa ávallt hag barnsins í fyrirrúmi.
Virðingin er mikil fyrir einstaklingnum (stórum og smáum) og eljan í starfsmannahópnum mikil.
Jóga er stór þáttur í daglegu starfi og það gerum við á ýmsum stöðum úti og inni.